sunnudagur, október 12, 2003

þegar enn ein helgin er búin ... erfiður föstudagur ... þá er gott að vita til þess að það eru 6 dagar í næstu.
alla vegana föstudagurinn byrjaði á djammi hjá mér ... bylgja frænka og þórdís komu í hemsókn ... við fórum eftir mikið trúnó á celtic þar sem við hittum fullt af skemmtilegu fólki og sungum mörg lög með trúbadornum ... bylgja fékk hann til að spila öll lög sem við vildum, snilld.
eftir celtic gáfust næstum allir upp ... ég fór aftur á móti í eftirpartý sem entist til kl hálf tíu tíu um morguninn ... áfengismagnið var orðið rosalegt og og súrar umræður föfðu átt sér stað en kvöldð/morguninn voru mjög skemmtileg ... takk fyrir mig robbi.

föstudagur, október 03, 2003

ég er svo þreytt að ég nenni varla að fara að skrifa ... gærdagurinn var ótrúlega ljúfur. kl 4 fór ég og hitti stelpurnar úr vinnunni á kaffi kúltúr ... þar næst fór ég með mömmu í búðina, verst að ég var ekki svöng ... þegar því lauk fórum við tófa í heimsókn til lisu og hittum nýja pinkulitla ótrúlega sæta kettlinginn hennar og fengum kaffi, þ.e ég ... svo æi gærkvöldi héldum við karlotta tveggjamanna rauðvínspartí þar sem drukknar voru 4 flöskur og ekki hætt fyrr en kl 3 í nótt ... að átti ekki að vera neitt vandamál þar sem ég átti að vera í fríi en þar sem gústi litli var veikur og þurfti endilega að segja það í morgunþá var hringt í mig kl. hálf 6 og ég beðin um að koma í vinnuna ... þar sem ég er svo góð sál gerði ég það og vann fyrir hann hádegið líka þannig að núna er ég alveg að sofna....

fimmtudagur, október 02, 2003

ok ... núna ætla ég að fara að skrifa meira.
helgin ... sem var reyndar búin fyrir hálfri viku, var all rosaleg. ég fór á djammið tvo daga í röð ... harka.
hitti fullt af skemmtilegu fólki, takk tinna og solla og tók fullt af myndum á nýju myndavélina mína ... núna er bara verið að vinna í því að búa til myndaalbúm, sem er drullu mikið mál þegar maður er svona mínus tölvunördeins og ég ... þetta hreinlega leiku ekki nógu vel í höndunum á mér.
hlakka ekki til næstu helgar þar sem að ég verð að vinna ... fullt hótel og lélegri þrifvaktin. en þar sem að við stofnuðum spilaklúbb í dag (é, tintin, sunna og sigurður) þá gæti verið að hún verði ekki alveg ömurleg.
23 dagar í afmæli ...

fimmtudagur, september 25, 2003

jess .... var að fá tölvupóst frá skíðaskólanum í wagrain og ég er búin að fá vinnu frá deginum sem lyfturnar opna og þangað til að enginn snjór er eftir .... charly, ef þú værir nálægt mér í kvöld þá myndi ég kyssa þig.
jæja ... tími til komin að fara að sofa svo að ég verði ekki of leiðinleg við bigga þegar hann vekur mig í fyrramálið
... harry potter here i come ... eða kanski bara þegar bachelor er búinn

miðvikudagur, september 24, 2003

jæja ... alltaf skal ég þykjast vera eitthvað rosalegt tölvunörd. búin að eyða heilum klukkutíma bara í að breyta um liti á blogginu mínu sem ég skrifa sárasjaldan inná þar sem að það er akkurat ekkert rosa spennandi að gerast hjá mér.
reyndar eru mamma og pabbi búin að selja skothúsveginn þannig að nú fer hver að verða síðastur að koma í heimsókn í kjallarann.
ég fór líka í heimsókn til jóns gunnars frænda míns áðan ... kom reyndar ekki á hentugasta tíma þar sem að hann og olka voru orðin allt of sein í myndatöku fyrir nýtt bubba myndband ... lagið heitir 1000 kossar, eða eitthvað þannig ... elísabet var rosa stressuð þar sem að þeir sem taka myndbandið sögðu að hún fengi meiri peninga ef það sést í brjóst ... hvað gerir maður ekki fyrir frægðina ... ég þekki bráðum frægt fólk .... ok þið megið senda mér kveðjur;)
pabbi á afmæli í dag ... við gleymdum afmælinu hans í fyrra þannig að ég var einstaklega góð dóttir í morgun ... tók til morgunmat fyrir hann og var búin að kaupa flota gjöf ... mamma ætlar að bjóða okkur út að borða og ég er búin að kaupa gjöf frá henni ... best að fara að pakka henni inn

föstudagur, september 19, 2003

jæja ... klukkan er ekki orðin eitt og ég er þegar komin heim úr vinnunni ... ömurlegt, ég hef ekkert að gera nema að hanga ... reyndar ekki.
ég er búin að kaupa mér kort í ræktina og þykist ætla að fara að taka mig á til að safna vöðvum og þoli fyrir veturinn svo að ég fái ekki jafn miklar harðsperrur í á og ég fékk í fyrra þegar ég byrjaði að kenna ... það var nefnilega mjög vandræðalegt ... kennarinn var með meiri strengi en nemendurnir.
ég fór með sigrúnu vinkonu minni á kaffihús í gær. það var voða fínt. við þykjumst vera svo fágaðar og miklar heimsmanneskjur að í staðinn fyrir að svolgra bjór ákváðum við að fá okkur sitthvort rauðvínsglasið ... ég held að það verði að eiga sér stað meiriháttar hugarfarsbreyting hjá íslendingum áður en okkar litla land, geti staðið undir væntingum tveggja dama eins og mér og sigrúnu. við fórum á kaffibarinn og rauðvínið sem við fengum var satt best að segja alger vibbi ... hvað er málið með að leyfa sér að selja rauðvín sem er búið að vera opið síðan síðustu helgi ... practicly been hyperventilating ... bera það fram í hvítvínsglösum frá ikea ... og rukka svo morð fjár fyrir, ef að flaska er búin að vera opin tvö kvöld þá er vínið ónýtt og það þarf bara tvö glös til að flaskan borgi sig ... en við máttum svo sem vita það að ef að maður vill fá drekkanlegt rauðvín á bar í reykjavík þá verður maður að fara á vínbarinn.
annars hefur dagurinn í dag verið ágætur ... það komu heilir 6 gestir í morgunmat ... allt karlmenn ... og ég held að ég hafi bara heillað þá alla upp úr skónum þar sem að ég er búin að vera í svo einstaklega góðu skapi í allan dag ... ok hálfan dag en það á pottþétt eftir að haldast þar sem að ég er að reyna að skipuleggja djamm með sigrúnu og tinnu í kvöld ... matur à la sigrún, gott rauðvín, g&t og gítar ... það er bjart frammundan
það er eiginlega ferlega leiðinlegt þegar maður er búinn að setja upp svona blogg löngu áður en að líf manns tekur stefnu í skemmtilega átt ... hvað á ég að vera að skrifa hérna ... ég vinn við að bera fram morgunmat á hóteli í reykjavík, ég mæti kl 6 á morgnanna og vinn til 11, í morgun kom enginn í morgunmat
... jei, frábært líf.ég verð bara að fara að ljúga, ok skrifa bara þegar ég er full ;)

fimmtudagur, september 18, 2003

alltílagi ... staðan er þessi:
... mig langaði að telja niður þangað til að ég færi út til austurríkis ... fyrir þá sem ekki vita þá er ég að fara að kenna á snjóbretti ... en þar sem að í þessari starfsgrein minni hefur veðrið mikið að segja um það hvenær hægt sé að byrja, þá þyrfti ég að kynnast skyggnum einstaklingi sem gæti sagt mér nákvæmlega hvenær byrji að snjóa ... þannig gæti ég farið að telja niður dagana og þyrfti ekki að bíða í von og óvon um að vera komin út fyrir jól.
... annað ráð í stöðunni væri náttúrulega að fara að biðja til veðurguðanna að það fari að snjóa. ég bið ykkur því ... ykkur öll sem þykir vænt um mig og þið sem viljið losna við mig af landinu ... að leggjast á bæn og óska þess að það fari að snjóa núna í austurríki, rétt eins og á akureyri.
takk fyrir samhuginn
okí dókí
fyrst allir eru að þessu ... af hverju ekki að prufa bara líka.
verið velkomin og njótið heil

This page is powered by Blogger. Isn't yours?